Opið í 113 daga og yfir 87 þúsund gestir

Gestir í Hlíðarfjalli voru yfir 87 þúsund í vetur, fleiri en verið hefur undanfarin ár. Mynd á faceb…
Gestir í Hlíðarfjalli voru yfir 87 þúsund í vetur, fleiri en verið hefur undanfarin ár. Mynd á facebook síðu Hlíðarfjalls

Formlegri opnun Hlíðarfjalls í vetur  lauk nú síðastliðinn laugardag, á lokadegi Andrésar Andarleikanna. Þeir tókust afar vel og var metþátttaka, um 900 keppendur í allt.

"Veturinn hjá okkur var alveg frábær og byrjaði strax snemma í desember með flottum aðstæðum á göngusvæðinu okkar og svo opnuðu lyfturnar okkar rétt fyrir jólin. Snjóalög héldust nokkuð góð í vetur en svo þegar mars gekk í garð fengum við heldur betur sendingu og púðursnjór sem gladdi marga fram í miðjan apríl Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma heimsmetsstökkinu sem kórónaði frábært tímabil," segir á facebooksíðu Hlíðarfjalls.

Skíðatíð lauk með því að opið var í 113 daga á skíðasvæðinu auk þó nokkurra auka daga á göngusvæði. Gestafjöldi fór yfir 87 þúsund sem er mun meira en síðustu ár

Ennþá er talsverður snjór á svæðinu og eitthvað verður um æfingar áfram og á göngusvæði verður troðið áfram á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa


Athugasemdir

Nýjast