Nýr formaður ÍBA Jóna tekur við af Geir

Geir Kristinn Aðalsteinsson lét af formennsku í ÍBA eftir 10 ár, en við tók Jóna Jónsdóttir.    Mynd…
Geir Kristinn Aðalsteinsson lét af formennsku í ÍBA eftir 10 ár, en við tók Jóna Jónsdóttir. Mynd IBA

Jóna Jónsdóttir er nýr formaður Íþróttabandalags Akureyrar. Hún tók við embættinu af Geir Kristni Aðalsteinssyni sem verið hafði formaður í 10 ár.  Ársþing ÍBA var haldið á dögunum.

Geir Kristinn var heiðraður á þinginu fyrir störf sín í þágu íþrótta í landinu, bæði af fulltrúum ÍSÍ og UMFÍ. Hlut hann gullmerki beggja samtaka. Þá hlaut hann einnig gullmerki frá ÍBA fyrir hans óeigingjarna framlag til bandalagsins og í garð íþrótta á Akureyri síðustu ár.

Ómar Kristinsson gekk einnig úr stjórn eftir margra ára setu. Auk Jónu sitja nú í stjórn, Birna Baldursdóttir varaformaður, Jón Steindór Árnason gjaldkeri, Sigrún Árnadóttir ritar og  Alfreð Birgisson sem kom nýr inn í stjórn.

Í æðstu stjórn ÍBA eru því nú þrjár konur, m.a.formaður, varaformaður og framkvæmdastjóri bandalagsins einnig.


Athugasemdir

Nýjast