Fiðringur í HOFI þriðja sinn 8. maí n.k.

Fiðringur i Hofi n.k. miðvikudagskvöld  Myndir Sindri Swan og Daníel Starrason fyrir Fiðring 2023
Fiðringur i Hofi n.k. miðvikudagskvöld Myndir Sindri Swan og Daníel Starrason fyrir Fiðring 2023

Fiðringur á Norðurlandi verður haldinn í HOFI þriðja sinn þann 8. maí kl 20. Skrekkur í Reykjavík og Sjálftinn á Suðurlandi eru fyrirmyndir Fiðrings sem er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi eystra til að láta rödd sína heyrast.

Tíu skólar taka þátt  

Tíu skólar taka þátt í ár og mætast þeir á úrslitakvöldinu og sýna afrakstur vinnu sinnar á vorönn. Mikil áhersla er lögð á að hugmyndin og útfærslan sé alfarið unglinganna sjálfra og einnig sjá þau um tæknimál og búninga, leikmynd og förðun.

Lýðræði er einn af hornsteinum Fiðrings og unglingarnir taka þátt í öllum ákvarðanatökum. Þannig er valið á listamanni sem skemmtir í  dómarahléi ákveðið út frá því hvaða lag ungmennin velja sem Fiðringslag. Í ár kusu krakkarnir lagið Skína með Prettyboitjokko sem mætir á svæðið. Einnig senda þau inn tillögur að baksviðspössum og kjósa svo eina tillögu sem er prentuð út og allir fá um hálsinn.

Kynnar kvöldsins verða Akureyringurinn Egill Andrason og Helga Salvör Jónsdóttir en þau útskrifast bæði frá LHÍ í vor.

Við lofum algjörri veislu í HOFI næsta miðvikudag. 

 

Almenningur getur keypt miða hér – fyllum húsið og hvetjum ungmennin til dáða í listsköpun sinni!

Fiðringur á tix.is


Athugasemdir

Nýjast