Andlega heilsan stærsti sigurinn

Katrín Mörk Melsen
Katrín Mörk Melsen

„Ég var búin að labba á einhvern vegg og vantaði aðstoð til að reyna komast bæði í líkamlegt og andlegt form. Þetta helst mikið í hendur. Ég fann að ég gat ekki gert þetta ein. Ég þekkti einn keppanda í síðustu seríu og hugsaði með mér að ég hefði engu að tapa og sótti um,“ segir Katrín Mörk Melsen, þátttakandi í þriðju þáttaröðinni af Biggest Loser. Í spjalli við Vikudag segist Katrín hafa verið komin á endastöð, bæði líkamlega og andlega og hafi þurft að gera eitthvað róttækt í sínum málum. Erfiðar að­ stæður heima við hafi haft sitt að segja en Katrín er þriggja barna móðir og á einhverfan son, Óliver Viktor, sem er mjög krefjandi. Ítarlegra viðtal við Katrínu Mörk má nálgast í prentúgáfu Vikudags.


Athugasemdir

Nýjast