Ekki gert ráð fyrir fjármagni í flughlað í samgönguáætlun

Frá vinnu við flughlað á Akureyrarflugvelli.
Frá vinnu við flughlað á Akureyrarflugvelli.

Ekki er gert ráð fyrir fjármagni í nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli í drögum að fjögurra ára samgönguáætlun. Fyllingarvinna í fyrsta áfanga nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst skömmu eftir áramót og lauk í síðasta mánuði þegar búið var nota það fjármagn sem veitt var í efnaflutning úr Vaðlaheiðargöngum í flughlaðið, eða 50 millj­ónir. Nóg er þó til að efni til að keyra. Lengri frétt um málið má nálgast í prentútgáfu Vikudags.

-Vikudagur, 14. apríl


Athugasemdir

Nýjast