#

Hótel Akureyri

Hótel Akureyri er stórglæsilegt fyrsta flokks hótel í hjarta Akureyrar. Þaðan er stutt að ganga í alla þjónustu sem og afþreyingu. 

Hótelið býður uppá vinalega og góða þjónustu og rólegt andrúmsloft. Hótelið býður uppá 19 þægileg herbergi þar sem engu hefur verið til sparað. Mörg herbergjanna státa af glæsilegu útsýni yfir Akureyrarpoll.

Herbergin eru hlýleg, með baðherbergi, kæliskáp, síma, fjölrása sjónvarpi og þráðlausu interneti. Herbergin eru á þremur efri hæðum húsins en rúmgóður morgunverðarsalur og setustofa á neðri hæð. Hótel Akureyri er reyklaust hótel. Næg bílastæði eru við hótelið.

Skammt frá hótelinu eru fjölmargir veitingarstaðir, kaffihús og ölkrár. Einnig er hægt að kaupa áfenga sem og óáfenga drykki í gestamóttökunni. Margir af áhugaverðustu stöðum bæjarins eru í næsta nágrenni við hótelið.

Sími: 462 5600 - www.hotelakureyri.is
Blanko 2

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn