#

Hoepfner húsið

Boðið er upp á 1 manns herbergi, 2ja manna herbergi, 3ja manna herbergi og íbúðir með svefnaðstöðu fyrir 2-4. Hægt er að velja á milli þess að fá svefnpokapláss eða uppábúið rúm.

Herbergin eru öll án baðherbergis en sameiginlegt baðherbergi er á hæðinni. Fullbúið eldhús er til afnota fyrir gestina. Í boði hússins er kaffi (ávallt nýmalað), te, ferskar appelsínur og svo er sleikjó fyrir stillta. Rúmgóð setustofa er á hæðinni þar sem gestir hafa aðgang að tölvu, þráðlaus internet tenging.

Íbúðirnar eru tvær. Önnur er rúmgóð stúdíó íbúð með tvíbreiðu rúmi og tvíbreiðum svefnsófa. Hin íbúðin er tveggja herbergja með tvíbreiðu rúmi í herbergi og svefnsófa fyrir 1 í stofunni. Í báðum íbúðunum er baðherbergi með sturtu, sjónvarp, ágætlega búin eldhús með leirtaui fyrir 4.

Morgunverður er framreiddur fyrir þá gesti sem þess óska á þeim tíma sem hentar best.

Hægt er að setja inn aukabedda fyrir stórar fjölskyldur og/eða barnarúm í stærri herbergin og íbúðirnar.

Sími: 463 3360 - www.hoepfner.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn