Hjá Gulu villunni er boðið upp á tvö gistiheimili, bæði staðsett í rólegu hverfi nálægt miðbæ Akureyrar. Það er einungis nokkurra mínútna ganga að flestum merkustu stöðum bæjarins. Sundlaug Akureyrar er í göngufæri og er opin allt árið um kring.
Gistiheimili Gulu villunnar eru á tveim stöðum á Akureyri, Brekkugötu 8 og Þingvallastræti 14. Herbergi Gulu villunnar eru hlý og notaleg og taka hvert 1-4 manneskjur.
Í báðum gistiheimilunum eru eldhús þar sem gestir geta annaðhvort keypt morgunverð eða eldað hann sjálfir að eigin hentugleika. Hafðu samband í síma eða með tölvupósti til að panta gistinætur hjá okkur eða til að fá upplýsingar. Við munum gera okkar besta til að gera dvöl þína hjá okkur sem þægilegasta.
Gestgjafar Gulu villunnar eru Elín Antonsdóttir og Skafti Hannesson. Vertu velkomin(n)!
Sími 896-8464 - www.gulavillan.is




