#

Brekkusel

Gistiheimilið Brekkusel leggur áherslu á hlýlega og heimilislega gistingu miðsvæðis á Akureyri í göngufæri frá sundlauginni. Örstutt er í verslun og niður í miðbæ. Gistiheimilið er nýlega gert upp og eru herbergin með eða án baðherbergis.

Bjóðum upp á uppbúin rúm og svefnpokagistingu. Gistiheimilið er á tveimur hæðum. Öll aðstaða er til fyrirmyndar og gestum stendur til boða aðgangur að baði og fullbúnu eldhúsi ásamt setustofu á hvorri hæð.

Verið velkomin.

Sími: 461 2660 - www.brekkusel.is
Blanko 1

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn