#

Strikið

Strikið er staðsett í Skipagötu 14., 5 hæð og skartar glæsilegu útsýni yfir Eyjafjörð og Akureyri. Strikið hóf rekstur formlega 22. desember 2005 en stendur á fornfrægum grunni því áður var Fiðlarinn á þakinu til húsa á þessum stað til fjölda ára við góðan orðstír.

Brasserie Strikið hallast að alþjóðlegri matargerð og býður upp á úrval rétta frá ýmsum heimshornum og er með léttleikandi hádegismatseðil en að kvöldi breytist Strikið í glæsilegan brasserie veitingastað.

Strikið leggur mikinn metnað í matreiðslu og þjónustu og að bjóða upp á létt og þægilegt andrúmsloft í stílhreinu húsnæði með metnað að leiðarljósi. Yfir daginn er boðið upp á kræsingar úr bakaríi Striksins.

Svalir Striksins eru 230 fm að stærð, þar eru skjólveggir og útihitarar.

Sími: 462 7100 - http://www.strikid.is/

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn