#

Halastjarnan


 
Halastjarna Veitingshús var stofnað sumarið 2004 af Guðveigu Eyglóardóttur. Bú og matstýra í dag er Sonja Lind Eyglóardóttir og yfirþjónn er Pavle Estrajher. Halastjarna er við þjóðveg 1 í um 20 mín akstri frá Akureyri, höfuðstað norðurlands. Leitast er við að bjóða gestum uppá fallegan og góðan mat í skemmtilegu umhverfi. Matseðilinn er 5 rétta breytilegur frá degi til dags og innihald miðast við hvað er mest spennandi og ferskast á fiskimarkaðnum, matjurtagarðinu, náttúrunni og hjá slátraranum. Lögð er áhersla á að reyna að hafa sem mest lífrænt ræktað. Veitingahúsið tekur um 25 manns í sæti og er opinn allt árið.

Yfir veturinn þarf að bóka borð með sólarhrings fyrirvara en yfir sumarið er opið alla daga frá kl 12. Við bjóðum uppá akstur endugjaldslaust frá Akureyri og nágrenni fyrir viðskiptavini okkar.

Halastjarna stendur á jörðinni Háls undir Hraundranga. Mjög skemmtileg og vinsæl gönguleið er frá Halastjörnu upp að Hraunsvatni, en það er um 2 klst lystaukandi ganga sem hentar flestum. Í nánasta nágrenni eða um 5 mín göngufæri er gistiheimilið Engimýri.

Sími 461 2200 - www.halastjarna.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn