Staðurinn sérhæfir sig í að elda úr fersku, íslensku hráefni á nútíma evrópska vísu. Á matseðlinum er fjölbreytt úrval af fisk-, kjöt- og grænmetisréttum.
„Gourmet menu“ er mjög vinsæll matseðill sem boðið er upp á, en þá fær gesturinn fimm rétta matseðil þar sem kokkurinn töfrar fram óvænta rétti og eru þeir síðan kynntir fyrir gestinum.
Í Júlí 2007 flutti veitingastaðurinn í Kaupvangsstræti 6, gegnt Hótel KEA.
Nafnið FRIÐRIK V er komið til af því að yfirkokkurinn og eigandinn heitir Friðrik Valur og þessi staður er fimmti (V.) staðurinn á Akureyri þar sem hann er kokkur. Þau hjónin eru áberandi í öllu starfi staðarins og Friðrik gerir mikið af því að hitta gestina. Þess má til gamans geta að börnin þeirra, Karen Ösp og Axel Fannar, eru einnig orðin áberandi í veitingarekstrinum, sérstaklega þegar fjölskyldan tekur að sér kynningar fyrir fyrirtæki og stofnanir fyrir utan fyrirtækið. Einnig hefur staðurinn notað Friðrik V. Danakonung í auglýsingum og við gerð lógóa o.s.frv.
Sími 461 5775 - www.fridrikv.is.