Flýtilyklar
Vikudagsfréttir
Allir hlægja á öskudaginn - miðvikudagur 22.feb.12 18:42
?Allir hlægja á öskudaginn,? segir einhvers staðar og það er óhætt að segja að akureysk ungmenni hafi haft ástæðu til brosa upphátt í dag, á öskudaginn. Börnin tóku daginn eldsnemma og héldu út í morguninn í alls kyns búningum, heimsóttu fyrirtæki, verslanir og stofnanir og tóku lagið í þeirri von að fá eitthvað góðgæti í staðinn. Víðast hvar var vel tekið á móti börnunum, sem þó höfðu lagt misjafnlega mikið í búninga og söngatriði. Allir reyndu þó að gera sitt besta. Leikfélag Akureyrar og Norðurorka leiddu saman hesta sína og buðu upp á kattarslag á flötinni neðan við Samkomuhúsið.
Beint flug milli Ljubljana og Akureyrar í sumar - miðvikudagur 22.feb.12 15:01
Þann 26. júní nk. lendir Airbus 320 á Akureyrarflugvelli með allt að 180 ferðamenn frá Slóveníu á vegum Ferðaskrifstofunnar Nonna. Fólkið, mun leggja leið sína um Norðurland og víðar næstu 7 dagana áður en það snýr til síns heima 3. júlí. Ferðaskrifstofan Nonni var stofnuð 1989 með það að markmiði að taka á móti erlendum ferðamönnum á Akureyri og greiða leið þeirra um Norðurland sérstaklega. Þetta hefur tekist bærilega og er skrifstofan sem betur fer ekki lengur ein, heldur eru fjölmargir aðilar hér á svæðinu, sem allir leggjast á eitt.
Mateja verður ekki með Þór/KA í sumar - miðvikudagur 22.feb.12 14:52
Mateja Zver, knattspyrnukonan öfluga frá Slóveníu, verður ekki með liði Þórs/KA í sumar í Pepsi-deildinni. Þetta staðfesti Aðalsteinn Pálsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, í samtali við Vikudag. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Þór/KA en Mateja hefur leikið með liðinu undanfarin fjögur sumur og verið einn besti leikmaður liðsins. Norðanliðið hefur einnig misst fyrrum fyrirliða sinn, sóknarmanninn Rakel Hönnudóttur, frá félaginu en hún gekk í raðir Breiðabliks og því hefur Þór/KA misst tvo bestu sóknarmenn liðsins.
Slysavarnaskóli sjómanna fær höfðinglega gjöf frá VÍS - miðvikudagur 22.feb.12 13:11
Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afhenti í gær Slysavarnaskóla sjómanna 10 björgunarbúninga til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Er það liður í forvarnasamstarfi sem hófst haustið 2009 og felur meðal annars í sér að VÍS færir skólanum árlega tug björgunarbúninga enda engin vanþörf á þar sem skólinn þarf að endurnýja hátt á þriðja tug björgunarbúninga á ári vegna mikillar notkunar á þeim á æfingum skólans. Markmið forvarnarsamstarfsins er að efla öryggismenningu um borð í fiskiskipum og gera störf sjómanna þannig öruggari en þau eru í dag.
Átak í bættri umgengni og umhirðu í sveitarfélaginu - miðvikudagur 22.feb.12 13:00
Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistans ræddi um umgengni og umhirðu í Akureyrarkaupstað á fundi bæjarstjórnar í gær. Hann taldi mikilvægt á þessu 150 ára afmæli bæjarins, að allir leggðust á eitt við að gera bæinn sem fallegastan og að hann yrði kominn í sitt besta og fallegasta form á sjálfan afmælisdaginn 29. ágúst nk. Aðrir bæjarfulltrúar sem tóku til máls, tóku undir með Sigurði. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri tók einnig þátt í umræðunni og hann sagði að því miður væri töluvert af rusli í miðbænum um helgar.
Heitustu smáauglýsingarnar
Leita
Færð á vegum (NA)
Skoða veðurkort




