#

Þriðjudagur..... dómsdagur

Í morgun var dómsdagur, menn stigu á vigtina mismunandi stressaðir.  Í ljós kom að um tvo sigurvegara yrðir að ræða.  Gunnar í liði team biafra léttist um 3,3 kg og  Ólafur úr liði the jelly beans um 2,2 kg en Ólafur er fyrir um 40 kg léttari og léttust þeir því báðir um 1,1 kg fyrir hver 40 kg.  Það er alltaf einhver sem tapar í hverri viku og aldrei gaman að blogga um það.  Í þessari viku er það bara sorglegt, Sigurður Rúnar Marinósson bætti á sig 0,3 kg.  Hvað er hægt að segja, hvar er verið að svindla, hvernig dettur mönnum í hug að draga lið sín svona niður.  Þetta gengur ekki svona, menn verða að taka sig saman í andlitinu og hætta hamborgurum og pítsum, standa upp og fara út að hlaupa á kvöldin.  Í svona keppni þýðir ekkert endlaust súkkulaði át og sjónvarpsgláp. Svo er það annar maður í öðru liði, sjö dagar og núll kg farin.  Hvað er í gangi, ætla menn aldrei að sjá neðri partinn á sér aftur, á bara að standa í stað og vera ánægður.  Er fjórða sætið bara allt í góðu, hvorki gull, silfur né brons. 

Eftir svona morgun langar manni varla að gefa nokkrum manni stig, nema tveimur efstu.  The jelly beans hefðu hugsamlega unnið sína fyrstu viku ef menn hefðu ekki verið að bæta á sig kg.  Í staðin, þrjár vikur og þrjú stig til team biafra.



Blanko 2
Blanko 1
Sjallinn

Könnun

Hvernig viltu sjá vefinn okkar Dagskrain.is?

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir
Blanko

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn