Miðvikudagur........ hvað er í gangi
Sem dómari verð ég að tala aftur m vigtina í gær. Njósnarar mínir sáu Sigurð ekki taka auka æfingu í morgun, hvað er að gerast. Er að koma að þeim degi að einhver verður undir tvær vikur í röð, förum við bara að sjá síðustu fjórar vikurnar í rugli og ruslfæði. Hafa liðsfélagar ekkert talað saman, ætla þeir ekkert að ræða við manninn á íslensku. Þarf nýtt tungumál í svona hluti??? Ég spyr bara, á ekki að berja manninn áfram af hatri og niðurlæginu útaf tapinu sem gjörsamlega skrifast á hann. Ef ekki hefði verið núll maður í hinu liðinu, þá hefði þetta bara þýtt sjósund á línuna. Ég vil fara að sjá kraft í mönnum, klærnar út og aðhald. Það eru fyrirtæki að leggja fjármuni í þessa keppni. Eiga þau að senda mönnum reikning með eindaga á morgun. Fitan aftur á og burt með úthaldið. Það er klárlega hægt að fá pítsu sem er 1,5 kg og renna henni niður með tveimur lítrum af kók.
Ég mun mæta í fyrramálið til að hrista mitt stóra rassgat, ef ekki verður sviti og roði á mönnum þá geta menn bara étið úr ruslatunnunni á Ráðhústorgi í hádeginu.




