Hvað gerðist?
Líkaminn - þriðjudagur 13.maí 2008
Þau orð sem mig langar að nota yfir þennan dag eru betur geymd í huga mínum. Þrír jólasveinar misstu sig um helgina og fitnuðu.
Þeir Ingi og Siggi bættu aftur á sig sundhring (1,7 og 1,5 kg) svona til að vera öruggir um að drukkna ekki í sjósundinu sem ég hef NÚ
hótað. Kannski halda þeir bara að fegurð komi að innan og ytra útlit skipti bara ekki máli. Þetta er í annað
skipti í mínu lífi sem ég er óánægður, en hitt skiptið kemur hér á eftir í sögu. Sagan er þannig að
ég var ferðast frá London til Íslands og með mér í för var félagi minn sem var rúmlega 100 kg þyngri en ég. Hann var
með tösku sem var 2 kg yfir vigt og þurfti ekki að borga neitt aukalega. Ég var hinsvegar með tösku sem var 10 kg of þung og mátti borga 7.000
krónur aukalega fyrir það. Í flugvélinni sat ég við hliðina á honum og gat aldrei komið mér almennilega fyrir þar sem hann
fyllti svo útí sætið sitt að ég varð að hafa hægri höndina samsíða líkamanum. Þegar við vorum að borða
rak hann olbogann stöðugt í mig og fékk aukaglas af gosi frá flugfreyjunni vegna stærðar. Hann þurfti að fara fimm sinnum á salernið
og kvartaði stöðugt yfir því að sætið væri of lítið. Þannig að eftir þessa flugferð fór ég að
hugsa afhverju eigum við að borga það sama fyrir flugfar og feitt fólk?. Þessi vinur minn fór með 90 kg meira en ég í flugið og var
ekki rukkaður fyrir það. Það hlýtur að skipta máli fyrir flugfélag hvort þeir fari með 100 manns sem eru 200 kg eða að fara
með 100 manns sem eru 80 kg. Þarna munar 12.000 kg TÓLF TONNUM. Getur einhver útskýrt þetta á mannamáli fyrir mér?.




