Fló á skinni - frumsýning
Leiksýningar - föstudagur 08.febrúar 2008
Fló á skinni er einn besti og eitraðasti gamanleikur allra tíma. Nú eru 100 ár frá því að þessi óborganlegi farsi Feydeau kitlaði fyrst hláturtaugar áhorfenda og hóf sannkallaða sigurför um heiminn. LA fagnar tímamótunum með sinni fyrstu uppsetningu á þessu vinsæla verki og í glænýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar.
Frumsýnt 8. febrúar 2008, forsala miða hefst 9. janúar - nánari upplýsingar á www.leikfelag.is.




