Fákar og fjör 2012
Skemmtanir - laugardagur 14.apríl 2012
Hestamannafélagið Léttir heldur stórsýninguna Fáka og fjör 2012 þann 14. apríl n.k. í Reiðhöllinni Akureyri. Fjölbreytt dagskrá verður í boði með keppnis- og kynbótahrossum, skemmtiatriðum, hrossaræktarbú sækja sýninguna heim, tilþrifaskeið o.fl. Við fáum stórstjörnur í heimsókn, bæði knapa og hesta og segjum við nánar frá því þegar nær dregur. Það verður því af nógu að taka fyrir alla áhugamenn um hestamennsku á þessari sýningu. Sýniningin hefst kl. 18 og verður henni skipt í þrjá hluta, með tveimur hléum. Þetta fyrirkomulag gafst afar vel á liðnu ári og verður endurtekið nú. Verið velkomin á sýninguna Fákar og fjör 2012 á Akureyri. Nefndin.




